Svona setur þú markmið og nærð þeim

DSC_1253,,Ég set mér oft markmið en gefst svo uppá þeim, hvernig á ég að setja mér markmið sem ég næ?”


Þetta er áhugaverð spurning sem við fengum senda frá lesanda og mér fannst kjörið að nýta nýja árið í að svara henni enda eru heilsumarkmið eflaust mörgum ofarlega í huga núna. Í janúar fyllast oft líkamsræktarstöðvar af fólki með há markmið sem oft á tíðum fara sér of geyst og gefast fljótlega upp.

Hér koma 5 ráð til þess að setja þér heilsumarkmið sem þú nærð

1. Skrifaðu markmiðin þín niður
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt mátt þess að skrifa niður markmiðin. Hversu einfalt er þetta ráð!? Með því að skrifa markmiðin niður ert þú allt að 42-50% líklegri til að ná þeim. Fáðu þér fallega stílabók eða dagbók og njóttu þess að strika markmiðin út á nýju ári.

2. Settu þér mörg lítil og raunhæf markmið
Það á aldrei að hætta að dreyma og auðvitað áttu að setja þér stór markmið. Hafðu bara í huga að hafa þau raunhæf og gefðu þér tíma til að ná þeim. Ef markmið eru of stór eða óraunhæf getur það orðið til þess að við frestum eða verðum vonsvikin með sjálf okkur. Ef markmiðið er stórt, skiptu því þá niður í minni markmið, t.d í stað þess að segja “ég ætla aldrei aftur að drekka gos” segðu frekar “ég ætla að hætta að drekka gos á öllum dögum nema laugardögum”.

3. Skrifaðu markmiðin niður á hvetjandi hátt
Fyrir sum okkar gæti það haft neikvæð áhrif að setja sér markmiðið “ég ætla að sleppa sykri í 14 daga áskorun” á meðan fyrir aðra gæti það verið jákvætt. Þegar þú skrifar markmið þín og segir frá þeim, hafðu þau með jákvæðum skilaboðum. Í dæminu að ofan gætir þú jafnvel viljað íhuga markmiðið “mig langar að borða hreina og holla fæðu í 14 daga” eða “ég set mig í forgang og ætla að borða fæðu sem nærir mig og gefur mér orku í 14 daga”.

4. Minntu þig reglulega á markmiðin þín og af hverju þú ert að vinna eftir þeim
Ástæða þess að mörg okkar byrja vel í upphafi en missa svo dampinn er sá að við einfaldlega höfum gleymt af hverju við settum markmiðin.  Þegar við viljum venja líkaman við nýja rútínu eins og að fara í ræktina verðum við að minna okkur stöðugt á það og setja það ef til vill í dagatalið svo við gleymum því ekki.

5. Leitaðu stuðnings við að ná markmiðum þínum
Rannsókn sem gerð var við Háskóla í Hollandi sýnir að þeir sem hafa gott félagsnet og stuðning eru allt að 80% líklegri til þess að ná varanlegum árangri. Segðu fjölskyldunni, samstarfsaðilum og vinum frá markmiðum þínum og biddu um stuðning þeirra, þau gætu jafnvel vilja vera með þér! 


Fáðu stuðninginn til að byrja árið orkumeiri, léttari og með heilsuna í forgangi með 14 daga sykurlausu áskoruninni gegn ókeypis skráningu hér
 og segðu öllum vinum þínum að vera með! Skrifaðu markmiðin niður hjá þegar þegar við byrjum mánudaginn 28.janúar - með því að skrifa niður og fá stuðning getur þú verið viss um að þetta ár byrji vel! ;)

Heilsa og hamingja, 
Júlía heilsumarkþjálfi


Svona lítur hreinsunardagur út

 

DSC_0005

Á nýju ári þykir mér tilvalið að taka einn dag í það minnsta í smá hreinsun. Einföld hreinsun eins og sú sem ég deili með þér í dag frískar uppá líkamann, losar um bólgur og kemur manni rétt af stað inn í nýja árið.

Það er algengur misskilningur að við þurfum að fasta eða drekka eingöngu safa til þess að hreinsa líkamann. Hreinsunardagurinn hér neðar inniheldur bæði safa, jógúrt, hrökkkex, súpu og meira að segja súkkulaðikúlu.

Hreinsun er tími til að borða hreina fæðu og gefa meltingunni hvíld frá reyktum og sykruðum mat sem oft fylgir hátíðarhöldum. Góður svefn og að hlúa að líkamanum er eitthvað sem ég legg frekar áherslu á á hreinsunardegi.

Smá undirbúningur daginn áður en hreinsunardagur er tekinn er ávísun á að dagurinn gangur betur fyrir sig. Gefðu þér klukkustund eða svo til að versla inn og undirbúa. Einnig er hægt er að kaupa tilbúna safa eða búst drykki t.d frá Gló til að minnka fyrirhöfn.

Hreinsunardagur

Morgunmatur - Grænn og hreinsandi safi

Millimál - Súkkulaðikúlur

Hádegi - Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana

Millimál -  Hrökkbrauð og hummus

Kvöldmatur - Létt súpa eða Linsubaunaréttur

(t.d frá Frískari og orkumeiri námskeiðinu sem byrjaði núna í janúar)

Undirbúningur

Verslið inn daginn áður, leggið chia fræ í bleyti fyrir jógúrt, útbúið hrökkbrauð eða/og súkkulaðikúlur til að hafa við hendi, einnig má flýta enn frekar fyrir og útbúa safann og jógúrtið.

Byrjið daginn á grænum safa og borðið næst þegar hungurtilfiningin kallar. Ef svengd er ekki mikil yfir daginn er óþarfi að borða allan matinn hér á matseðlinum. Ykkur er velkomið að skipta uppröðun uppskrifta eftir hentisemi, þetta hér að ofan er bara tillaga en má algjörlega hliðra til.

 

Vertu svo með í ókeypis 14 daga sykurlausu áskoruninni sem hefst 28.janúar! Ég get lofað því að áskorunin í ár verður sú allra besta hingað til! Færðu uppskriftir, innkaupalista og hagnýt ráð að sykurleysinu. Er skráning hafin HÉR!

 

Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband