10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2018!

2018Eins og alltaf voru janúar og febrúar alveg pakkaðir hjá mér. Það er alltaf mikið að gera í kringum sykurlausu áskorunina, auk þess sem við opnuðum á ný fyrir skráningar á “Frískari og orkumeiri á 30 dögum” námskeiðið. Það er greinilegt að byrjun árs er tíminn sem allir vilja taka heilsuna í gegn og skráningar í ár slógu öll met hjá okkur!

Eitt af því sem ég geri alltaf í upphafi árs, sem ekki gafst tími í, er að rifja upp vinsælustu greinar og uppskriftir frá liðnu ári. Þetta er gott tækifæri til að rifja upp girnilegar uppskriftir og sjá eitthvað sem þú gætir hafa misst af!

1. Fáðu matarskipulagið mitt og uppskriftir!

Einfalda sunnudags-matarskipulagið mitt sló aldeilis í gegn, það gladdi mig mikið að sjá hversu margir nýttu sér það eða yfir 1.500 manns! Ef þú hefur ekki prófað get ég lofað þér því að þetta mun einfalda þér lífið. Í matarskipulaginu gaf ég uppskriftir af kókosjógúrtinu mínu, súkkulaðikúlum og fleira sem ég geri á sunnudögum og hjálpar mér að halda mig við hollan lífsstíl þrátt fyrir annríki vikunnar. Sækið matarskipulagið ókeypis hér.

2. Vanillu- og myntudraumur sem seðjar sykurþörfina!

Himneskur drykkur með vanillumjólk og myntuþeyting, algjört nammi! Smellið hér fyrir uppskrift.

3. Vanillubollakökur með hindberjasmjörkremi (vegan og glútenlausar)

Jafn bragðgóðar og þær eru fallegar! Ekki skemmir fyrir að þær eru hollar og einfaldar, fáið uppskriftina hér.

4. Konur og ketó

Ketó mataræði var mikið umtalað á síðasta ári og virðast vinsældir þess bara fara vaxandi. Mér fannst því mikilvægt að bæta í umræðuna hvaða áhrif ketó mataræði hefur á konur og hvað þarf að hafa í huga. Ef þú ert kona og ert að íhuga ketó, lestu þetta fyrst!

5. Súkkulaði trufflur með lakkrís

Þarf að segja meira? Þessi uppskrift er algjörlega ómótstæðileg. Ef þú hefur ekki prófað mæli ég með að gera það sem allra fyrst! Ekki gera ráð fyrir að vilja deila! Trufflurnar eru tímafrekar í framkvæmd en vá hvað þær eru þess virði.

 

6. Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum

Mín útgáfa af jólasteikinni sem á vel við sem páskamatur fyrir grænkera. Uppskriftin er afar einföld enda blómkálssteikin sett í ofn og því næst borin fram með sósu!

7. Streita og magnesíum

Þessa mæli ég með að lesa ef þú hefur ekki gert svo nú þegar! Magnesíum er gríðarlega áhrifaríkt gegn streitu og tek ég inn magnesíum daglega.

8. Fáðu glænýja sumar-matarskipulag mitt og uppskriftir!

Matarskipulag vol.2! Hér gaf ég fljótlegar og einfaldar uppskriftir t.d af hvítlaukssósu, sætkartöflumús, kínóa og laxasalati sem ég geri þegar ég ferðast innanlands. Skipulagið hentar þó vel fyrir einstaklinga og fjölskyldur með þétta dagskrá yfir vikuna og vilja hafa hollan og góðan mat heimavið. Smelltu hér fyrir matarskipulag vol. 2 ókeypis!

9. Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu

Dásamlegur réttur sem allir elska og kemur granateplasalsað skemmtilega á óvart. Hægt er að elda þorskinn á pönnu eða ofni ef það hentar betur.

10. 5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg

Öll glímum við við bólgur og bjúg einhvern tímann á lífsleiðinni. Þú átt sennilega eitthvað af þessum fæðutegundum nú þegar.

 

Mér þótti gaman að rifja upp hvað var vinsælt frá liðnu ári og vona ég að þú hafir átt gagn af því! Ekki gleyma ef deila á greininni á samfélagsmiðlum og þú prófar uppskrift að tagga mig á Instagram @julias.food!

Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi


Fæðutegundir sem draga úr bólgum og hrista burtu flensu á sólarhring!

Glímir þú við bólgur, bjúg eða flensu?

Rót bólguvandamála getur verið margþætt og mikilvægt er að finna rót vandans áður en lengra er haldið.

Margir læknar og sérfræðingar í dag eru sammála því að sykur er leiðandi orsök í “inflammation” eða bólgumyndum í líkamanum. Sykur getur skert ónæmiskerfið og minnkað upptöku næringarefna, sem þýðir að við erum ekki fyllilega að nýta þá næringu sem við gefum líkamanum, og getur sykurinn leitt til meiriháttar kvilla.

Því mæli ég ávallt með breyttu mataræði til að halda bólgum í burtu til lengri tíma. Ef það er eitthvað sem þú hefur áhuga á mæli ég með að skoða Frískari og Orkumeiri á 30 dögum námskeiðið hér, enda lýkur skráningu á miðnætti á morgun

 

DSC_4958small

 

Túrmerik (curcumin)

Eftir mikla rannsóknarvinnu á bólgueyðandi fæðu varð mér ljóst að túrmerik er ein fremsta fæðan. Túmerik hefur lengi verið notað í gegnum árin í lækningarskyni og hefur græðandi áhrif. Túrmerkið eflir meltingu, styrkir ónæmiskerfið og vinnur gegn sjúkdómum. Mér finnst 100% hrein túrmerik skot virka hvað áhrifaríkast á líkamann. Túrmerik Latté er önnur leið að njóta túrmeriks og hef ég notað blöndu frá Sonnentor en það fæst í litlum kössum í Nettó sem dæmi.

Engifer

Engifer hefur svipuð bólgueyðandi áhrif og túrmerik en er einnig góður við meltingatruflunum, ógleði, loftmyndun og krampa í maganum. Einnig er engiferjurtin örvandi fyrir blóðrásina og rík af b-vítamínum, járni, mangan, magnesíum og sinki.  Æðislegt að taka skot með túrmerik, engifer og svörtum pipar (svartur pipar bætir upptöku túmeriks).

Omega-3 fitursýrur

Omega-3 fitusýrur örva fitubrennslu og draga úr vökvasöfnun og sætindafíkn. Þær hafa einnig góð áhrif á húðina og nauðsynlegar fyrir virka meltingu. Chia fræ, lax/silungur, hörfræ olía eða hemp olía (t.d frá Biona sem fæst í Nettó) eru góð uppspretta af omega-3 fitusýrum.

Kollagen

Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans og er að finna finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum mannslíkamanum. Kollagen er sérlega bólgueyðandi vegna áhrifa sem það hefur á meltingaveginn. Líkamsstarfsemi framleiðir kollagen en það fer að hægast á þeirri framleiðslu um 25 ára aldurinn og þá er í hættu að vefir líkamans veikist, liðir stífna og hrukkur myndist. Ég tek kollagen frá Feel Iceland og elska bragðið af því. Kollagen finnst einnig í beinasoði, en beinasoð er ofboðslega græðandi og gott í meltingu. Bone and Marrow eru íslenskir framleiðendur af beinasoði.

 

Smelltu hér fyrir 1 dags skipulagið mitt sem dregur úr bólgum og hristir burtu flensuna á sólarhring! Þetta er dæmi um mataræði mitt sem vinnur vel á bólgum líkamans og eflir ónæmiskerfið.

 

Þangað til næst sendi ég þér heilsu og hamingju,

Júlía heilsumarkþjálfi

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband