19.10.2016 | 09:59
Ég er flutt til LA!
Næsti kafli í lífi mínu...
Hráfæðiskóli!
Ég mun halda áfram að skrifa þér frá sólríku Venice, Kaliforníu þar sem ég mun flytja í mánuð og fara í matreiðsluskóla hjá Matthew Kenney, en þar verð ég daglega að bralla í eldhúsinu og að drekka kókosvatn á ströndinni.
Ég býð þér að fylgjast með mér á facebook, instagram og snapchat: lifdutilfulls þar sem ég deili með þér lífinu í LA!
Eitt það helsta sem ég er spurð að þegar kemur að því að viðhalda heilbrigði er; hvernig er best að flýta fyrir og hagræða vikunni?
Mér datt þá í hug að deila með þér hvað ég geri og ég vona að þú munir nýta þér næstu vikurnar, hér eru nokkur ráð að því hvað ég geri vikulega til að flýta fyrir eldamennskunni og halda hollustunni gangandi.
Nýta sunnudaga í undirbúning.
Þetta bjargar mér algjörlega þegar ég á mjög annríkt í gegnum vikuna en þá geri ég gjarnan baunir, kínóa, dressingu og jógúrt eins og þetta eða múslí upp úr uppskriftabókinni til að eiga og grípa í. Að auki geri ég ofboðslega oft sæta kartöflu og kínóa burritoið mitt sem má finna í uppskriftabók minni og á það til í gegnum vikuna.
Farðu hér til að lesa restina af hollráðunum á blogginu.
Hlakka til að vera með þér á samfélagsmiðlum næstu daga frá LA.
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
Lífstíll | Breytt 20.10.2016 kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2016 | 10:13
Ekta súkkulaði brownie sem er líka holl!
Mmm... mjúk súkkulaðikaka, silkimjúkur kókosrjómi og fersk ber.
Eins og sannur sælkeri á ég erfitt með að standast gómsætar tertur og þessi hittir ávallt í mark. Hún er ein af mínum uppáhalds, enda þykir mér fátt betra en dökkt súkkulaði.
Uppskriftin er úr bókinni Lifðu til fulls sem er nú mest selda uppskriftabók landsins, en þið sem hafið nælt í eintak af bókinni vitið þegar hvað ég elska sætindi.
Ef þú elskar hollan og góðan mat minni ég á námskeið mín framundan. Ég mun kenna þér að gera hollan og einfaldan mat ásamt sætubitum sem bragðast ómótstæðilega, gefa líkamanum orku og fá hann til að ljóma! Nú er að fyllast á námskeiðin, smelltu hér til að tryggja þér sæti.
Kakan er einföld og þægileg að eiga í frysti þar sem hægt er að borða hana nærri strax og hún er tekin út. Þar sem hún er úr möndlum og avókadó gefur hún góða fyllingu og getur oft ein væn sneið róað sykurpúkann og við þurfum ekki meir.
Ekta súkkulaði brownies
Botn:
1 bolli möndlur (lagðar í bleyti í 2 klst. eða yfir nótt)
¾ bolli mjúkar döðlur, fjarlægið steininn
salt á hnífsoddi
Súkkulaðikrem:
1 og ½ (c.a ¾ bolli) stórt fullþroskað avókadó
½ bolli kakóduft
¼ bolli kókosolía í fljótandi formi
¼ bolli mjúkar döðlur, fjarlægið steininn
4 dropar stevía frá via health
vanilluduft á hnífsoddi eða 1 tsk. vanilludropar
salt á hnífsoddi
Malið möndlurnar vel í matvinnsluvél á lægstu stillingu. Bætið döðlum og salti út í og hrærið þar til blandan myndar deigkúlu sem helst vel saman (ef deigið er of þurrt má bæta við 1-2 tsk af kókosolíu í fljótandi formi). Þrýstið niður í 23 cm smelluform og geymið í kæli á meðan þið útbúið krem.
Setjið næst öll innihaldsefni fyrir súkkulaðikremið í matvinnsluvél eða blandara og blandið þar til kremið er orðið silkimjúkt. Smyrjið kreminu á botninn og geymið kökuna í kæli eða frysti í klukkustund áður en hún er borin fram eða frystið yfir nótt.
Njótið með kókosrjóma og berjum. Kissuber eða Jarðaber eru mitt uppáhald.
Kókosrjómi
Kókosdós, ég nota frá Coop merki í Nettó
2-3 steviudropar með vanillubragði (ég nota frá via health)
- Kælið kókosmjólkina í ísskáp yfir nóttu.
- Hellið mestum vökvanum úr dósinni, þar til bara hnausþykki parturinn situr eftir og setjið í matvinnsluvél ásamt steviudropum. hrærið eins og þið mynduð venjulegan rjóma þar til áferðin minnir á hefðbundinn rjóma.
Farðu hér til að flétta í gegnum bókinni og sjá hvar hún er fáanleg!
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
p.s Fylgstu með Hringbraut sjónvarpsstöð á föstudag, ég verð í þættinum. Ég verð einnig í Eymundsson, Kringlunni, næstkomandi laugardag frá 14 - 16 að kynna bókina! Segðu hæ ef þú átt leið framhjá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2016 | 10:42
Bókin mín er loksins komin og því ber að fagna!
Gettu hvað? Í þessum töluðu orðum er uppskriftabókin mín Lifðu til fulls, yfir 100 ómótstæðilegar og einfaldar uppskriftir fyrir orku og ljóma á leið í bókabúðir um land allt! Ég get ekki lýst þessari tilfinningu en hér má sjá myndband sem sýnir viðbrögðin þegar ég sá fyrsta eintakið af bókinni minni,
Ekkert myndi gleðja mig frekar en að þú myndir koma og fagna útgáfunni með mér. Ég vil því bjóða þér að koma í útgáfuboðið mitt . Það verður haldið í Græna herberginu, Lækjargötu 6, 15. September milli 17 og 19. Það verða léttar veitingar upp úr bókinni í boði og að sjálfsögðu verður bókin til sölu í boðinu. Sjáðu viðburðin á facebook hér!
Uppskriftir bókarinnar eru fljótlegar og einfaldar og hæfa annríkum lífstíll vel. Maturinn er hreint og plöntumiðað sem og laust við sykur og glútein. Þær henta því þeim sem eru vegan en einnig er sérkafli með kjöt- og fiskréttum. Í bókinni finnnur þú allt frá morgunverði til kvöldmatar ásamt ómissandi kafla með sektarlausum sætindum, fræðlu um nátturulegu sætuefni, matarveislu og próteinríkum millibita.
Þessi bók er afrakstur allrar þeirrar vinnu sem ég hef unnið undanfarin ár og hófst með því að ég greindist ung með allskonar kvilla sem ég segi nánar frá í bókinni. Þar hófst heilsuferðalagið mitt sem enn stendur yfir og árangurinn sem ég náði með mataræði var ótrúlegur sem og þeirra sem hafa verið hjá mér í þjálfun síðustu ár. Ég get ekki beðið eftir að þú hefjir þitt heilsuferðalag og vona að bókin færi þér ljóma með hverjum bita.
Bókin ætti að vera komin í bókaverslanir um land allt í dag.
Sjáumst í útgáfuboðinu!
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2016 | 14:46
Lærðu að elska sjálfa þig!
Við erum flestar sekar um að finnast við ekki vera nóg.
Þrátt fyrir að það sé gott að sjá hvað okkur líkar í fari eða útlit annarra og leggja okkur fram um að veita því viðurkenningu er ekki síður mikilvægt (ef ekki mikilvægara) að leita uppi og viðurkenna eigin kosti.
Ég hef sjálf verið sek að hugsa ohh þú ert svo feit. Mér finnst það orðið aðeins of eðlislægt hjá okkur konum að gagnrýna sjálfar okkur.
Svo má velta fyrir sér við hvað er verið að miða þegar slíkar hugsanir koma upp?
Verðum við nóg þegar að við fáum flatan maga og stór brjóst, munum við þá loks geta lifað sáttar við sjálfar okkur? Eða getum við verið nóg alveg eins og við erum í dag? Því lífið er núna!
Þú ert svo miklu meira en einhver tala á vigtinni eða spegilmynd getur sagt til um. Sjálfsvirðing okkar á ekki að stýrast af hugmyndum annarra um hvernig við eigum að vera.
Að vera kona í dag getur verið gríðarlega flókið. Samfélagið virðist gera til okkar óraunhæfar kröfur um hvernig við eigum að líta út. Þær konur sem við sjáum á fjölmiðlum og margir líta upp til eru oftar en ekki að birtast okkur með stýrðu útliti. Þá á ég við að útliti þeirra sé stjórnað af myndvinnsluforritum og lagfært með hinum ýmsu filterum sem gerðir eru til að breyta útliti í átt að þeirri fullkomnu ímynd sem við eigum allar að hafa. Sem betur fer er vitundarvakning um þetta að aukast og það var frískandi að sjá óunnar myndir birtast um helgina af aðalleikonunum Lenu Dunham og Jemima Kirke úr Girls sem báðar fóru fram á að ekki yrði neitt átt við myndirnar af þeim, þær vildu birtast okkur eins og þær raunverulega eru þegar þær sátu fyrir í nærfötum frá Lonely nærfatamerkinu. Fleiri stjörnur taka þátt í þessari byltingu, t.d. Julia Roberts sem birti ómálaða mynd af sér á instagramminu sínu í því skyni að hvetja konur til að sættast við sjálfar sig alveg eins og þær eru.
Ég tel mun mikilvægara að telja upp kosti sína frekar en kaloríur og að það besta sem við getum gert fyrir okkur sjálf er að vinna í því að vera hamingjusöm og sátt í eigin skinni.
Það er í gegnum sjálfsást sem við öðlumst viljann til að sinna okkur vel, velja mat sem nærir fallegu líkamana okkar og fyllir okkur orku svo við getum náð fram því sem við viljum áorka og hjálpar okkur að halda okkur við hreyfingu.
Að iðka sjálfsást getur verið eins einfalt og að horfa í spegilinn og taka eftir því einhverju sem þú ert sérstaklega ánægð með. Það getur verið að taka utan um sjálfa þig og brosa til þín eða að gera eitthvað notalegt fyrir sjálfa þig eins og þurrbursta líkamann áður en þú ferð í sturtu, að vera góð við líkama þinn í stað þess að horfa framhjá honum.
Sjálfsást er ekki eitthvað sem hægt er að öðlast á einni nóttu heldur langtímaverkefni, ég glími við það á hverjum degi og minni mig reglulega á að ég sé fín alveg eins og ég er.
Ég vona að þetta hvetji þig til að horfa jákvæðari augum til sjálfrar þín því ég er sannfærð um að þú átt það skilið.
Þar til næst.
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2016 | 10:08
Æðisleg fyllt sæt kartafla sem þú munt elska!
Vika tvö er hafin í Ókeypis 14 daga áskorun að sykurleysi en nú þegar hafa hátt í 25.000 manns tekið þátt í áskoruninni undir handleiðslu minni.
Það er ekki of seint að vera með! Þú getur smellt hér og fengið strax aðgang að uppskriftum vikunnar ásamt innkaupalista og fleiri ráðum til að vinna bug á sykurpúkanum.
Tækifæri til að fá uppskriftir og innkaupalista í hendurnar, ásamt stuðningi og hvatningu gerist ekki á hverjum degi og hvað þá ókeypis. Smelltu hér fyrir fimmtudaginn og þá tryggir þú þér uppskriftir viku tvö í áskoruninni ásamt einföldum innkaupalista.
Hér er ein af æðislegu uppskriftunum sem ég deili með þátttakendum í áskoruninni!
Fyllt sæt kartafla með spínati og hvítlaukssósu
~fyrir 2
1 sæt kartafla
Fylling:
1/2 tsk kókosolía
1 stór rauður laukur, gróflega saxaður
2-3 hvítlauksgeirar, fínlega saxaðir
1 bolli kjúklingabaunir
tvö handfylli spínat
pipar og salt eftir smekk
Hvítlauksósa:
1/2 bolli tahini
1/2 bolli vatn
1 hvítlauksgeiri, pressaður
1 sítróna kreist
1/2 tsk paprikukrydd (val)
salt eftir smekk
Hitið ofninn í 200°C eða útigrill. Skerið sætu kartöfluna til helminga. Setjið á ofnplötu og penslið yfir með olíu eða vefjið í álpappír og setjið á útigrill. Eldið í 25-30 mín eða þar til hægt er að stinga gafli inn í kartöfluna.
Setjið öll innihaldsefni í dressingu í blandara og hrærið. Útbúið því næst fyllingu með því að hita pönnu með örlítið af kókosolíu og snöggsteikja lauk, hvítlauk, kjúklingabaunir, spínat og krydda með salti og pipar. Steikið í um 5-7 mínútur. Skerið sætkatöflubáta langsum og þversum og þrýstið á til að opna, bætið við spínatfyllingu og dreifið hvítlauksósu veglega yfir.
Vona að þið njótið í botn!
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2016 | 08:28
Ég skora á þig að sleppa sykri með mér!
Í dag, 15. ágúst hefst ný 14 daga sykurlaus áskorun hjá Lifðu til fulls. Það kostar ekki krónu að taka þátt!
Með þátttöku þinni getur þú aukið orkuna, lést og losnað við sykurpúkann í eitt skipti fyrir öll!
Ég skora því á þig að sleppa sykrinum með mér í 14 daga og gefa líkama þínum næringuna sem hann raunverulega kallar eftir!
Ég sendi þér uppskriftir, innkaupalista og allskonar ráð, það eina sem þú þarft að gera er að prófa eina nýja, ljúffenga og sykurlausa uppskrift á hverjum degi!
Sjálf var ég algjör sykurfíkill hér áður og þekki vel hversu erfitt er að reyna sleppa sykri. Ég vildi því gera þetta eins auðvelt og hægt væri, en líka ótrúlega djúsí!Það er ekkert spennandi að sleppa sykri til þess eins að sitja eftir með kálhaus.
Uppskriftirnar eru þannig samsettar að þær slá á sykurþörfina og eru vegan að auki. Markmiðið er að þú gerir þitt besta, eina sem ég legg til er að þú verslir inn og prófir eina uppskrift á dag eða farir alla leið ef það er það sem þú vilt.
Þegar ég byrjaði að borða þennan mat var ekki aftur snúið því ég upplifði þvílíka vellíðan, einbeitingu og orku. Ég er handviss um að þessi dásamlegi matur úr áskoruninni smakkist betur en sykraða fæðan sem ég neytti hér áður og nú er komið að þér að prófa!
Hvað segirðu, 14 dagar af þessum 365 á árinu, þetta mun líða hraðar en þú getur ímyndað þér!
Ég vona að þú fáir alla vini þína með þér, og að saman skapið þið nýjar og heilsusamlegri venjur.
Smelltu hér til að skrá þig og taka þátt!
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
P.s. Ég verð á snapchat:lifutilfulls í fullu fjöri á meðan áskorun stendur! Bættu mér við og fylgstu með
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2016 | 21:44
Súkkulaðikúlur á innan við 4 mínútum, þú verður að prófa!
Kannast þú við þennan tíma dags þegar líkaminn hreinlega ærist og kallar á eitthvað sætt og orkuríkt?
Það er akkúrat þá sem þessar hrákúlur koma sér vel. Mér finnst gott að eiga alltaf eitthvað til að grípa í sem svalar sykurpúkanum. Það er svo mikilvægt þegar við breytum lífsstílnum að upplifa aldrei tilfinninguna að maður sé að neita sér um eitthvað. Það finnst mér vera leyndarmálið á bak við að halda þetta út.
Þær minna mig á hefðbundar kókoskúlur en smakkast betur ef eitthvað er.
Uppskriftin
1 bolli möndlur
1/2 bolli dökkt, lífrænt kakóduft
1/2 bolli mjúkar döðlur
Lífrænt vanilluduft á hnífsoddi eða 2 vanilludropar
1-3 Steviu dropar (má sleppa)
Öllu skutlað í matvinnsluvél og blandað vel saman. Ef döðlurnar eru harðar er betra að leggja þær í bleyti í nokkrar mínútur og skola af þeim áður en þær eru notaðar. Mótið í litlar kúlur (eins og einn munnbiti) og rúllið upp úr einhverju af hráefnunum hér að neðan. Kókosmjöl er í algjöru uppáhaldi hjá mér.
Skreytið kúlurnar með:
Kókosmjöli
Kakódufti
Chia fræjum
Hempfræjum
Rauðrófudufti
En það má endalaust leika sér með að upp úr hverju maður rúllar þeim, hnetukurl væri til dæmis æðislegt líka!
Njótið í ferðalaginu, milli mála eða hvenær sem sykurlöngunin grípur þig og fylltu líkamann sannkallaðri vellíðan.
Nú styttist í okkar vinsælu 14 daga, sykurlausu, áskorun! Farðu hér til að tryggja þér ókeypis þátttöku og fá nýjar uppskriftir sem slá á sykurþörfina. Áskorunin byrjar 15. ágúst og fæst eingöngu með skráningu hér! Þú þarft einungis að skrá þig og gera þitt besta, ég sé um skipulagið og uppskriftirnar, engar áhyggjur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2016 | 13:39
Æðislegar grænkálsvefjur sem þú munt elska!
Ég verð að deila uppskriftinni að þessum grænkálsvefjum með þér!
Einfalt, hreint og fljótlegt er það sem ég elska í matargerð.
Það tekur innan við tvær mínútur að setja saman þessa snilld og vefjurnar gefa þér góða fyllingu sem endist fram eftir degi.
Það sem er enn betra er þær hjálpa til við að slá á sykurþörfina og jafna blóðsykur.
Uppskrift:
Vefjur
2-4 grænkálsblöð (fer eftir stærð)
1/2 gúrka
1/2 bolli rauðkál
Lífrænt epli
Fersk mynta
Sítróna til að kreista yfir
Tahinidressing:
1 msk tahini
1-2 msk eplaedik
1-2 msk sítrónusafi
- Hrærið saman í dressinguna og setjið til hliðar.
- Raðið grænkálsblöðum á disk. Reynið að velja stór grænkálsblöð í vefjurnar þar sem þær verða auðveldari að borða. Yfirleitt finn ég stór og falleg blöð í búðinni en ef þú átt leið hjá bændamarkaði er það upplagt.
- Skerið grænmetið og eplin smátt. Smyrjið tahini dressingu í grænkálsblöðin og dreifið grænmeti yfir. Kreistið sítrónusafa yfir herlegheitin svo auðveldara sé að tyggja grænkálið og það fari betur í meltinguna og stráið svo ferskri myntu að lokum.Njótið með vinum!
Eplin og myntan gera salatið virkilega ferskt og sætt. Mér finnst æðislegt að bæta við kjúklingaspírum eða hemp fræjum fyrir auka prótein.
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi
p.s. Ég er alltaf að gera eitthvað sniðugt á Snapchat, bættu mér við: lifdutilfulls
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2016 | 07:26
Þrír æðislegir sumarkokteilar!
Sumarið er sannarlega komið og tími fyrir holla kokteila! Hér koma þrír einfaldir og fljótlegir drykkir sem eru í alvörunni ótrúlega góðir fyrir þig.
Ég nota gjarnan sítrónur og límónur í kokteilinn en sítrónur eru fullar af C vítamíni og innihalda pectin trefja sem geta hjálpað við hreinsun. Ég mæli með lífrænum sítrusávöxtum þar sem mesta eitrið er á berkinum en ef þú notar hefðbundnar má kreista safann úr þeim og henda berkinum. Ef þú ert að fara í gegnum 5 daga matarhreinsun mína eru drykkirnir hæfir samhliða.
Drykkirnir svalandi og geta slegið á sykurþörfina. Þeir eru því fullkomnir í grillpartýið í sumar. Þrátt fyrir vera óáfengir bera kokteilarnir skemmtileg nöfn sem lýsa bragðinu.
Ónæmisbætandi margarita
3 appelsínur (notið kjötið úr 1 appelsínu samhliða)
1 sítróna
lúka af ferskri myntu
30 dropar Sólhattur
Skreytt með: Chilliflögum, límónusneiðum, myntu
Setjið allt í safapressu, skreytið svo drykkinn með myntu og chilli flögum
Endurnærandi mojito
2 lúkur grænkál
1 gúrka
2 lífræn epli
1-2 cm lífræn engiferót
2 límónur
1 lúka fersk mynta
1/2 bolli léttkolsýrt sódavatn
Skreytt með: Myntublöðum og límónusneiðum
Setjið allt í safapressu, skreytið svo drykkinn með myntu og límónusneiðum.
Jarðaberja- og myntu sangria
Jarðaber
Gúrka
Mynta
Sítróna eða límóna
Léttkolsýrt vatn
Skerið niður jarðaber, gúrku og sítrónur. Setjið í glas og hellið yfir léttkolsýrðu vatni eða sódavatni.
Njótið í góðum félagsskap á sólríkum degi!
Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2016 | 22:03
Haltu í hollustuna á ferðalögunum í sumar!
Eitt af því sem ég er gjarnan spurð að er hvernig ég borða hollt þegar ég er á ferðalagi. Með stærstu ferðamannahelgi ársins að baki finnst mér upplagt að segja ykkur frá því hvernig ég huga að heilsunni þegar ég er á flakki.
Svar mitt við þessari spurningu er að þetta snýst fyrst og fremst um skipulag. Ég veit að það er ekkert sérstaklega spennandi svar en þú kemst fljótt upp á lagið með að skipuleggja þig og það gerir ferðalagið þúsund sinnum ánægjulegra. Ég tek það sem mér finnst algjörlega nauðsynlegt til að viðhalda orku, góðri meltingu og vellíðan með mér. Það leiðinlegasta sem ég veit er að fara í ferðalag og koma til baka þrútin, orkulaus og nokkrum kílóum þyngri. Ég gafst upp á því fyrir löngu og ég vona að greinin í dag og leiðarvísir minn auðveldi þér að velja hollt á flakkinu í sumar.
Það sem ég tek með mér í ferðalagið:
Chia fræ og hemp fræ fyrir saðsaman graut
Grænt duft eða chlorella töflur
Grænir safar
Raw próteinstangir
Heimagerðir snarlpokar og kókosflögur
Orkukúlur
Epli og möndlusmjör
Jurta- eða grænt te
Hollt hrökkbrauð, vegan ostur og þurrkaðar ólífur
Ef þú nærð ekki að undirbúa þig fyrir ferðalagið er alltaf hægt að stoppa við á bensínstöð. Dæmi um holla kosti sem ég hef fundið eru: Hnetur (forðist súkkulaðihúðaðar útaf sykurmagni), Raw bar ef fæst, dökkt lífrænt súkkulaði, Fitnesspopp, hreinan Topp eða kristal (þeir bragðbættu innihalda sykur) og The Berry Company safar eða aðrir safar án viðbætts sykurs.
Að viðhalda heilbrigði í sumar mun skila sér margfalt til baka hvað varðar vellíðan og orku. Allar tilögurnar hér eru hreinsunararvænar ef þú ert að fylgja 5 daga matarhreinsuninni okkar, sjá fyrsta daginn hér.
Deildu á Facebook og bjóddu vinum þínum að velja hollt með þér í sumar. Fylgstu með mér á ferð og flugi á Snapchat: lifdutilfulls og Instagram!
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)