26.3.2025 | 15:39
Fræolíur: Hættan sem leynist í mataræðinu þínu
Umræðan um fræolíur eða seed oils hefur tekið samfélagsmiðla með stormi. En hvað eru þessar svokölluðu seed oils, af hverju ættum við að forðast þær og hvað ættum við að nota í staðinn?
Þetta er eitthvað sem ég mun skoða nánar í greininni í dag.
Hvað eru fræolíur?
Fræolíur eru olíur sem eru unnar úr fræjum plantna. Þær eru ódýrar í framleiðslu og því gjarnan notaðar til steikingar á skyndibita og settar í ýmis matvæli. Listinn yfir fræolíur í matvælum er nær óendanlegur en þær eru helst að finna í majónesi, sósum, jurtarjóma, ís, ásamt flestum innpökkuðum mat eins og snakki, brauði og kexi.
Nú til dags standa fræolíur fyrir allt að 30% daglegri kaloríuinntöku okkar.
Hvað er málið með fræolíur?
Dr. Cate Shanahan, lífefnafræðingur og læknir, er ein af leiðandi talskonum þessarar umræðu. Cate hefur einmitt nýlega gefið út bókina Dark Calories sem fjallar um skaðleg áhrif fræolía.
Cate hóf rannsóknarvinnu sína um fræolíur til að geta svarað betur hver orsökin væri á bak við heilsubresti og sjúkdóma sjúklinga sinna. Í læknisfræðinni á þeim tíma var mikið verið að tala um ferli sem heitir oxunarálag og hvernig það væri helsta orsök margra heilsubresta og sjúkdóma, á þeim tíma var þó orsök þessara sjúkdóma óþekkt.
Cate komst þá að því að fræolíur, þegar þær eru eldaðar við háan hita, valda akkúrat þessu oxunarálagi. Þetta oxunarálag hefur áhrif á frumur okkar, þar sem það skemmir frumuhimnur, eykur bólgur, stuðlar að hraðari öldrun og gerir okkur háð sykri. Langvarandi oxunarálag getur einnig aukið hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki og öðrum sjúkdómum. Sjálfsagt er fleira sem getur valdið oxunarálagi, en inntaka á fræolíum er eitthvað sem við ættum öll vissulega að vera meðvituð um, ef við viljum styðja við heilsu okkar og langlíf.
Hvaða fræolíur ættum við að forðast?
Hér koma þær fræolíur sem eru meðal þeirra skaðlegustu fyrir heilsuna að sögn Cate. Mikilvægt er að kanna hvort séu í matvælum okkar, svo hægt sé að forðast þær.
- Canola oil (Rapsolía)
- Corn oil (Maís olía)
- Cotton seed oil (Bómullarfræsolía)
- Soy (Soja)
- Sunflower oil (Sólblómaolía)
- Safflower oil (Safírolía)
- Rice bran oil (Hrísgrjónaklíðolía)
- Grapeseed oil (Þrúgukjarnaolía)
- Peanut oil (Hnetuolía)
Hafið í huga að uppruni og vinnsluferli olíunnar skiptir gríðarlegu máli og gæti vel verið að hægt sé að finna einhverjar af þessum olíum lífrænar og kaldpressaðar, ekki hitaðar við of háan hita sem stuðlar að oxunarálagi. Ef þessi olía er í þessum algengu matvælum sem við finnum út í búð er líklegt að svo sé.
Hvaða olíur ættum við þá að velja?
Olíurnar sem eru náttúrulega mettaðar fitur, sem haldast nokkuð stöðugar við hitun og oxiderast þá ekki auðveldlega.
Veljið ávallt olíurnar úr dökkri glerflösku til að tryggja gæði. Kókosolían er undanskilin og fæst í venjulegum glerkrukkum.
Kaldpressuð ólífuolía
Kaldpressuð ólífuolía ætti að vera á hverju heimili enda fullkomin í eldamennskuna, t.d. yfir salöt, í dressingar eða til þess að létt steikja. Ekki er ráðlagt að hita ólífuolíu við mjög miklum hita þar sem hún hefur ekki eins hátt hitaþol og t.d. kókos- eða avókadóolía. Olífuolían er rík af andoxunarefnum, sem hjálpa til við að berjast gegn skemmdum sem oxun getur valdið ásamt því að draga úr bólgum.
Kókosolía
Kókosolía hefur sérstaklega hátt hitaþol og því góð til eldunar eða steikingar. Einnig má bræða kókosolíuna og setja út í búst eða nota í hrákökur. Auk þess hefur kókosolían eiginleika sem styðja við betri meltingu og ónæmiskerfi.
Avókadóolía
Avókadóolía hefur að auki hátt hitaþol og því kjörin í eldamennsku eða til steikingar. Olían er fljótandi og nokkuð hlutlaus á bragðið og góður grunnur í dressingar. Avókadóolían er einnig rík andoxunarefna sem getur hjálpað til að draga úr bólgum og varið frumur gegn skemmdum.
Smjör og Ghee
Gamla mýtan um að smjör sé óhollt hefur löngu verið afsannað. Gamla góða íslenska smjörið er í raun kjörin til eldamennsku enda höfum við aðgengi að einu hreinasta smjöri sem völ er á. Passið ykkur þó á því að smjör brennur við of háan hita og því gæti ghee verið betri kostur. Ef þú þekkir ekki ghee, þá er það í raun hreinsað smjör eða á ensku clarified butter. Hægt er að kaupa ghee eða útbúa það sjálf.
Til að taka saman
- Fræolíur valda oxunarálagi í líkamanum sem er talin einn helsta orsök sjúkdóma í dag
- Lesum á umbúðir matvæla, til að átta okkur á því hvort um ræðir óæskilegar olíur
- Forðumst olíurnar níu sem eru:. Corn, Canola, Cotton, Soy, Sunflower, Safflower, Rice bran, Grapeseed, Peanut (íslensku nöfnin eru að ofan í þessari grein)
- Veljum frekar betri olíur sem eru: kaldpressuð ólífuolía, kókosolía, avókadó olía og smjör eða ghee
Það getur reynst yfirþyrmandi að taka þetta skref, taka út fræolíur í mataræðinu. Sérstaklega ef maður hugsar ef til vill með sér hvað á ég þá að kaupa og borða?
Íslendingar eru einnig mjög hrifnir af sósunum sínum, sem því miður (spolier alert) innihalda nær allar fræolíur! Einnig má hafa í huga að margar vegan afurðir eru fullar af fræolíum sem gerir þær ekki endilega hollan kost.
Taktu næsta skrefið
Ef þú vilt fá enn frekari handleiðslu í að taka mataræðið og heilsuna í gegn, mæli ég með að þú kynnir þér áskrift okkar. Þar erum við búin að rannsaka innihaldslýsingar matvæla fyrir þig. Þú færð einfalt matarplan í hverri viku með nýjum uppskriftum, innkaupalista, ásamt fræðslu og fróðleiksmolum. Við vekjum þig til umhugsunar og fáum þig til að íhuga málin frá nýjum hliðum og sjá hlutina í nýju ljósi
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi, heilsukokkur og stofnandi Lifðu til fulls
Bloggar | Breytt 4.4.2025 kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)